Mikilvægur heimaleikur gegn ÍBV

Handbolti

KA/Þór tekur á móti ÍBV í mikilvægum leik í Olísdeild kvenna klukkan 18:00 í KA-Heimilinu í dag. Liðin mættust nýverið í hörkuleik í Vestmannaeyjum þar sem ÍBV fór með sigur af hólmi. KA/Þór svaraði hinsvegar vel fyrir sig í kjölfarið með sigrum á Haukum og Fram.

Fyrir leikinn er KA/Þór í 3. sæti deildarinnar með 23 stig eftir 17 leiki en ÍBV er með 18 stig eftir 16 leiki. Með sigri í dag er KA/Þór aðeins tveimur stigum frá toppsæti deildarinnar þegar þrjár umferðir eru eftir auk þess sem að aðeins eitt stig myndi skilja stelpurnar frá liði Vals sem situr í 2. sæti.

Efstu tvö lið deildarinnar sleppa við að spila í 8-liða úrslitum úrslitakeppninnar og því mikilvægt að ná einu af þeim sætum. Það eru því mikilvæg stig í húfi í dag og hvetjum við alla sem geta til að mæta og styðja stelpurnar okkar til sigurs!

Fyrir þá sem ekki komast er leikurinn í beinni á KA-TV og hægt að nálgast útsendinguna hér fyrir neðan, áfram KA/Þór!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is