Flýtilyklar
Miðasala hafin á bikarslag KA/Þórs
27.02.2020
Handbolti
Bikarúrslitahelgin í handboltanum er framundan og KA/Þór þarf á þínum stuðning að halda! Stelpurnar mæta Haukum miðvikudaginn 4. mars klukkan 18:00 í undanúrslitunum og við ætlum að styðja þær áfram í úrslitaleikinn!
Miðasalan er hafin og er mikilvægt að þið kaupið miðana í gegnum okkar slóð sem er tix.is/kathor.
Þá verðum við með fría hópferð á leikinn ef næg þátttaka næst og þarf því að tryggja sér sæti með því að senda póst á agust@ka.is. Hlökkum til að taka yfir stúkuna og njóta bikarveislunnar, áfram KA/Þór!