Loksins heimaleikur á sunnudaginn!

Handbolti

Það er loksins komið að næsta heimaleik í handboltanum hjá strákunum eftir langa EM pásu auk þess sem að leikurinn gegn ÍBV sem átti að fara fram síðustu helgi var frestað vegna ófærðar. Á sunnudaginn klukkan 17:00 eru það Stjörnumenn sem mæta norður og við ætlum okkur tvö stig.

Strákarnir koma af miklum krafti inn í leikinn en þeir hafa unnið þrjá síðustu leiki sína og ætla sér enn meira. Það er svakaleg barátta framundan í deildinni og ljóst að það eru ansi mikilvæg stig í húfi á sunnudaginn og alveg klárt að við þurfum á ykkar stuðning að halda.

Fyrir leik munum við hylla þrjár goðsagnir úr handboltasögu KA og því eina vitið að mæta tímanlega og taka virkan þátt í stúkunni, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is