Flýtilyklar
Leggðu strákunum okkar lið í baráttunni!
24.01.2022
Handbolti
Nú um mánaðarmótin mun birtast í heimabankanum hjá öllum Akureyringum valgreiðslukrafa frá handknattleiksdeild KA til styrktar reksturs meistaraflokks KA. Gríðarlega mikið og gott starf hefur verið unnið í kringum lið KA undanfarin ár þar sem markvisst hefur verið unnið að því að koma karlaliði KA aftur í fremstu röð eftir að liðið var endurvakið árið 2017.
Með mikilli þrautseigju hefur tekist að festa lið okkar í sessi í efstu deild og var stórt skref stigið á síðustu leiktíð er KA lék aftur í úrslitakeppninni í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn. Þessi flotti árangur hefur skapað mikinn og jákvæðan áhuga á liðinu sem hefur meðal annars skilað fleiri öflugum iðkendum í yngriflokkastarf handknattleiksdeildar.
Við leggjum mikinn metnað í að vera jákvæðar fyrirmyndir og skapa skemmtilegt og uppbyggilegt umhverfi en lið okkar er byggt upp á bæði öflugum reynslumeiri leikmönnum sem og ungum og efnilegum iðkendum úr félaginu.
Heimsfaraldurinn sem nú hefur geysað í hartnær tvö ár hefur haft mikil áhrif á rekstur deildarinnar, bæði vegna áhorfendaleysis sem og annarra ófyrirséðra ástæðna. Við viljum halda áfram okkar metnaðarfulla starfi og þess vegna leitum við nú til ykkar kæru Akureyringar. Stuðningur ykkar skiptir sköpum til að halda áfram úti öflugu liði hér á Akureyri. Með fyrirframþökk, handknattleiksdeild KA.
Fyrir þá sem eru ekki búsettir á Akureyri er hægt að greiða inn á reikning deildarinnar.
RN: 0162-26-11888
KT: 571005-0180