KA/Þór mætir í Garðabæinn kl. 16:00

Handbolti

KA/Þór mætir Stjörnunni í Olísdeild kvenna klukkan 16:00 í TM-Höllinni í Garðabæ. Stelpurnar eru á toppi deildarinnar ásamt Fram eftir átta fyrstu umferðirnar en Garðbæingar eru einungis tveimur stigum á eftir í 4. sætinu.

Það er því heldur betur mikilvæg stig í húfi í dag og um sannkallaðan fjögurra stiga leik að ræða. Stelpurnar okkar hafa einungis tapað einum leik í vetur og það var einmitt gegn Stjörnunni í KA-Heimilinu í haust og ekki nokkur spurning að stelpurnar ætla sér að kvitta fyrir það í dag.

Engir áhorfendur eru leyfðir á leiknum en hann verður í beinni á YouTube rás 210TV, áfram KA/Þór!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is