KA/Þór líka í úrslitahelgi bikarsins

Handbolti
KA/Þór líka í úrslitahelgi bikarsins
Sigrinum var vel fagnað (mynd: Þórir Tryggva)

Stelpurnar í KA/Þór tryggðu sér sæti í úrslitahelgi Coca-Cola bikarsins þriðja árið í röð með afar sannfærandi 30-20 sigri á HK í KA-Heimilinu en stelpurnar eru einmitt ríkjandi Bikarmeistarar eftir sigur í keppninni í haust.

Það er komin ansi sterk bikarhefð hjá stelpunum en þær hafa nú farið fjórum sinnum í úrslitahelgina á síðustu fimm árum, geri aðrir betur! Þórir Tryggvason ljósmyndari var á leiknum og býður til myndaveislu frá leiknum og sigurfögnuðinum í leikslok.


Smelltu á myndina til að skoða myndir Þóris Tryggva frá leiknum

KA/Þór leiddi leikinn frá upphafi en gekk erfiðlega að skilja sig frá baráttuglöðu liði gestanna. Það gekk þó loks í upphafi síðari hálfleiks og stelpurnar hreinlega gengu frá leiknum. Að lokum var sigurinn aldrei í hættu og 30-20 sigur staðreynd.

Það á eftir að draga í undanúrslitin en það er ljóst að leikið verður á Ásvöllum í Hafnarfirði þar sem enn er unnið að viðgerðum í Laugardalshöllinni. Leikið verður miðvikudaginn 9. mars og daginn eftir mun karlalið KA leika sinn undanúrslitaleik. Úrslitaleikirnir fara svo fram laugardaginn 12. mars og því eina vitið að taka dagana frá nú þegar.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is