Flýtilyklar
KA sækir HK heim kl. 18:00
16.09.2021
Handbolti
Handboltinn er kominn af stað og í dag sækir KA lið HK heim í fyrstu umferð Olísdeildar karla klukkan 18:00 í Kórnum. Það er heldur betur spennandi vetur framundan og strákarnir eru staðráðnir í að byrja af krafti!
KA liðið er töluvert breytt frá síðustu leiktíð og verður afar spennandi að sjá hvernig liðinu gengur gegn sprækum nýliðum í HK. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport en við hvetjum að sjálfsögðu alla sem geta til að mæta og styðja strákana, áfram KA!