KA í lokaúrslit í 4. flokki yngri

Handbolti

Strákarnir á yngra ári í 4. flokki karla í handboltanum leika til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn en strákarnir tryggðu sér sæti í úrslitunum með frábærum 31-16 sigri á HK í KA-Heimilinu í dag.

KA liðið er Deildarmeistari en strákarnir hafa ekki enn tapað leik í vetur og hafa spilað ákaflega vel voru afar sannfærandi í dag. Þeir náðu strax góðu taki á leiknum í dag og leiddu 14-7 er liðin gengu til búningsherbergja. Þeir héldu svo áfram að spila öflugan varnarleik og refsuðu grimmt með hröðum upphlaupum.

Að lokum vannst 31-16 sigur og strákarnir leika því um Íslandsmeistaratitilinn á laugardaginn kemur og mæta þá annaðhvort Aftureldingu eða Gróttu. Úrslitaleikurinn rétt eins og aðrir úrslitaleikir yngriflokka fer fram í Mosfellsbæ á úrslitahátíð á laugardaginn.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is