Flýtilyklar
Helga og Rakel í U18 og Hildur í U16
25.02.2020
Handbolti
KA/Þór á þrjá fulltrúa í U16 og U18 ára landsliðshópum Íslands í handbolta sem munu æfa dagana 26.-29. mars næstkomandi. Helga María Viðarsdóttir og Rakel Sara Elvarsdóttir voru valdar í U18 ára landsliðið og Hildur Lilja Jónsdóttir var valin í U16 ára hópinn.
Magnús Stefánsson og Díana Guðjónsdóttir stýra U18 landsliðinu sem náði eins og frægt er orðið silfri á EM-B mótinu í sumar. Rakel Dögg Bragadóttir og Árni Stefán Guðjónsson stýra svo U16.
Við óskum stelpunum til hamingju með valið sem og góðs gengis á komandi æfingum.