Flýtilyklar
Gauti Gunnarsson til liðs við KA
Gauti Gunnarsson skrifaði í dag undir tveggja ára samning við handknattleiksdeild KA og mun því leika með liðinu á næstu leiktíð. Gauti er gríðarlega spennandi tvítugur örvhentur leikmaður sem gengur til liðs við KA frá ÍBV.
Gauti er fastamaður í U20 ára landsliði Íslands og var einmitt í dag valinn í lokahóp liðsins sem tekur þátt á EM í Portúgal 5.-18. júlí næstkomandi. Þá lék hann vel með ÍBV á nýloknu tímabili þar sem ÍBV fór alla leið í úrslit úrslitakeppninnar.
Gauti verður án nokkurs vafa frábær viðbót við þá Allan Norðberg og Einar Rafn Eiðsson á hægri vængnum á komandi tímabili. Mikil uppbygging hefur verið í starfi handknattleiksdeildar undanfarin ár en KA lék til Bikarúrslita í vetur og lék auk þess annað árið í röð í úrslitakeppninni og ekki nokkur spurning að við ætlum að halda áfram að gefa í á komandi vetri.
Samningurinn var undirritaður í M-Sport í Kaupangi en handknattleiksdeild KA skrifaði á dögunum undir samning við Macron og mun því leika í fatnaði frá Macron næstu fjögur árin. M-Sport verður þjónustuaðilinn fyrir Macron fatnaðinn hér fyrir norðan.