Flýtilyklar
Fjórar frá KA/Þór í lokahóp U19
KA/Þór á fjóra fulltrúa í U19 ára landsliði Íslands í handbolta sem tekur þátt í Evrópumótinu í Makedóníu í sumar auk þess sem liðið mætir Færeyjum í æfingaleikjum í lok júní. Hópurinn kemur saman til æfinga þann 18. júní næstkomandi.
Þetta eru þær Anna Marý Jónsdóttir, Júlía Sóley Björnsdóttir, Ólöf Maren Bjarnadóttir og Rakel Sara Elvarsdóttir. Eins og fyrr segir er þetta lokahópurinn fyrir Evrópumótið en Ísland leikur í B-deild sem fer fram dagana 10.-18. júlí.
Það er ákaflega gaman að sjá jafn marga flotta fulltrúa úr okkar röðum í hópnum og verður ansi gaman að fylgjast með stelpunum í þessu krefjandi en jafnframt skemmtilega verkefni. Þjálfarar liðsins eru þau Díana Guðjónsdóttir og Magnús Stefánsson en Magnús er okkur vel kunnugur enda uppalinn hjá KA.
Við óskum stelpunum til hamingju með valið sem og góðs gengis í Makedóníu.