Flýtilyklar
ÁK Smíði styrkir KA og KA/Þór
08.02.2021
Handbolti
ÁK Smíði hefur gert tveggja ára styrktarsamning við handknattleikslið KA og KA/Þórs. ÁK Smíði kemur þar með inn í góðan hóp öflugra bakhjarla handboltans en bæði KA og KA/Þór hafa fest sig í sessi sem lið í efstu deild og situr KA/Þór nú í efsta sæti Olísdeildar kvenna.
Það er mikill kraftur og metnaður í starfi handknattleiksdeildar hvort sem litið er til meistaraflokka eða yngriflokka og skiptir samstarf og stuðningur fyrirtækja gríðarlega miklu máli í að viðhalda og bæta enn við það flotta starf sem búið er að byggja upp innan félagsins.
Við þökkum ÁK Smíði kærlega fyrir styrkinn og hlökkum til samstarfsins.