8 frá KA/Þór í U15, U16 og U18

Handbolti
8 frá KA/Þór í U15, U16 og U18
Bjart framundan! (mynd: Egill Bjarni)

KA/Þór á alls átta fulltrúa í æfingahópum U15, U16 og U18 ára landsliða Íslands í handbolta sem koma saman til æfinga í byrjunu mars. Mikil gróska er í kvennastarfinu hjá okkur um þessar mundir og afar gaman að sjá jafn margar stelpur úr okkar röðum valdar í landsliðshópana.

Þær Arna Dögg Kristinsdóttir, Auður Bergrún Snorradóttir, Júlía Sól Arnórsdóttir, Kristín Andrea Hinriksdóttir og Kristín Birta Líndal Gunnarsdóttir eru allar í U15 hópnum sem kemur saman dagana 4.-6. mars en Díana Guðjónsdóttir og Jón Brynjar Björnsson stýra liðinu.

Bergrós Ásta Guðmundsdóttir og Lydía Gunnþórsdóttir eru í U16 hópnum en þær æfa dagana 2.-6. mars undir stjórn þeirra Guðmundar Helga Pálssonar og Dags Snæs Steingrímssonar.

Þá er Hildur Lilja Jónsdóttir í U18 hópnum sem æfir 2.-6 mars næstkomandi. Ágúst Þór Jóhannsson og Árni Stefán Guðjónsson stýra liðinu.

Við óskum stelpunum innilega til hamingju með valið sem og góðs gengis á komandi æfingum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is