3. flokkur hampaði titlinum eftir sigur á Þór

Handbolti
3. flokkur hampaði titlinum eftir sigur á Þór
Strákarnir sáttir með sigur á Þór og bikarinn!

Strákarnir í 3. flokki karla í handboltanum unnu nágranna sína í Þór 22-30 í Íþróttahöllinni í dag og hömpuðu í leikslok Deildarmeistaratitlinum fyrir sigur í 2. deild. Strákarnir hafa verið afar flottir í vetur og töpuðu aðeins einum leik.

Það verður áhugavert að fylgjast með framvindu strákanna en þeir hafa bætt í jafnt og þétt í vetur og þá eru nú þegar þrír leikmenn liðsins sem eru komnir með reynslu í meistaraflokki félagsins.

2. deildarmeistarar KA í 3. flokki
Aftari röð: Arnór Ísak Haddsson, Ragnar Hólm Sigurbjörnsson, Skarphéðinn Ívar Einarsson, Kristján Elí Jónasson, Bruno Bernat, Aðalbjörn Leifsson, Hilmar Bjarki Gislason, Jóhann Bjarki Hauksson, Stefán Árnason.
Fremri röð: Jónsteinn Helgi Þórsson, Ernir Elí Ellertsson, Fannar Már Jónsson, Aron Orri Alfreðsson, Haraldur Bolli Heimisson, Ísak Óli Eggertsson.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is