Flýtilyklar
10 fulltrúar KA í U15 og U16 landsliðunum
KA á alls 10 fulltrúa í landsliðshópum U15 og U16 ára landsliða Íslands í handbolta sem munu koma saman til æfinga helgina 5.-7. nóvember næstkomandi. Það segir ansi mikið um það frábæra starf sem er unnið hjá félaginu að eiga jafn marga fulltrúa í hópunum tveimur.
Aron Daði Stefánsson, Ingólfur Benediktsson, Leó Friðriksson, Úlfar Örn Guðbjargarson og Þórir Hrafn Ellertson eru fulltrúar okkar í U15 ára landsliðinu en því stýra þeir Halldór Jóhann Sigfússon og Haraldur Þorvarðarson.
Fulltrúar okkar í U16 ára hópnum
Dagur Árni Heimisson, Hugi Elmarsson, Jens Bergþórsson, Magnús Jónatansson og Óskar Þórarinsson voru svo valdir í U16 ára landsliðið en þjálfarar liðsins eru þeir Heimir Örn Árnason og Hrannar Guðmundsson.
Við óskum strákunum innilega til hamingju með valið sem og góðs gengis á komandi æfingum.