Breyttur leiktími á bikarleik KA/Þórs

Handbolti

Vegna færðar hefur bikarleikur KA/Þórs og HK í 8-liða úrslitum Coca-Cola bikarsins verið færður til klukkan 19:30 í dag. Bikartvenna dagsins hefst því klukkan 16:00 á leik KA og Hauka í 8-liða úrslitum karlamegin og konurnar taka svo við keflinu.

Stuðningur ykkar skiptir öllu máli og það er alveg ljóst að við ætlum að koma báðum liðum í Höllina, hlökkum til að sjá ykkur og áfram KA og KA/Þór!

Miðatvenna kostar einungis 3.000 krónur og frítt er inn fyrir 16 ára og yngri. Athugið að ársmiðar gilda ekki í bikarkeppninni.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is