Flýtilyklar
Blaktímabilið byrjar á morgun | Breytingar á liðunum okkar
Keppnin um meistara meistaranna fer fram á morgun, laugardag, í KA-heimilinu. Karlaliðið okkar tekur á móti Hamar frá Hveragerði kl. 19:00 en kl. 16:30 taka stelpurnar á móti HK.
Af því tilefni ætlum við að renna aðeins yfir breytingarnar sem hafa orðið á KA liðunum fyrir komandi vetur. Okkur til halds og trausts í þessari vinnu var Miguel Mateo Castrillo sem þjálfar bæði liðin í vetur.
Karlalið KA:
Karlalið KA hefur misst fjóra leikmenn frá því á síðustu leiktíð.
Sölvi Páll Sigurpálsson sem leikur stöðu kants og sprakk út á síðustu leiktíð hefur söðlað um og farið heim til Neskaupsstaðar. Sömu sögu er að segja um Andra Snæ Sigurjónsson sem ákvað að flytja aftur heim á Neskaupsstað. Mateusz Jeleniewski verður ekki með liðinu amk fram til áramóta en mögulega ekkert á tímabilinu. Hann lék stöðu frelsingja og stýrði allri móttöku og vörn hjá liðinu á síðustu leiktíð.
Draupnir Jarl Kristjánsson mun heldur ekki leika með liðinu á komandi tímabili en hann lék stöðu uppspilara og stóð sig með prýði.
Aðrir leikmenn verða áfram, þar með talin Zdravko sem kom á miðju tímabili í fyrra og var valinn besti uppspilari deildarinnar í lok tímabils.
Þar sem að bæði ákveðin skörð eru höggvin í liðið með brotthvarfi ofantaldra leikmanna ákvað félagið að sækja sér einn leikmann til að styrkja liðið fyrir átökin í vetur. Sá leikmaður verður vonandi klár í slaginn á morgun og heitir Ivanov og kemur frá Búlgaríu. Mateo þjálfari bindur miklar vonir við hann í móttöku og uppspili hjá liðinu í vetur og verður gaman að sjá hann í gulu og bláu.
Kvennalið KA:
Kvennalið KA hefur misst þrjá mikilvæga leikmenn fyrir komandi tímabil.
Gígja Guðnadóttir, fyrirliði og aðstoðarþjálfari karlaliðsins á síðustu leiktíð, er flutt til Frakklands þar sem hún mun búa og spila blak. Þá er Jóna Margrét Arnarsdóttir farin til Spánar þar sem hún mun leika blak í vetur. Jóna var aðstoðarfyrirliði liðsins síðasta vetur og því þvílík skörð höggvin í liðið bæði innan sem utan vallar með þessum tveimur leikmönnum. Þá mun Nera Mateljan ekki leika áfram með KA en hún lék með liðinu á síðustu leiktíð sem díó.
Í stað þessara þriggja leikmanna hefur kvennaliðið sótt sér styrkingu í spænskri stúlku að nafni Julia. Hún kemur frá liði í efstu deild á Spáni og mun gefa liðinu mikið í móttöku og vörn. Hún er að jafna sig eftir krossbandsslit en er orðin leikfær og verður gaman að sjá hana á dúknum í KA-heimilinu í vetur.
Þá munu yngri leikmenn KA liðsins fá stærri tækifæri enda tóku þeir stórt stökk í framför í fyrra og mun Amelía Sigurðardóttir leika sem fyrsti uppspilari liðsins.
Við hvetjum alla til þess að leggja leið sína í KA-heimilið á morgun og minnum á að ársmiðasala er í fullum gangi hér.