Flýtilyklar
Ársmiðasalan er hafin í Stubb!
Handboltaveturinn hefst með látum á laugardaginn þegar KA og KA/Þór hefja leik í Olísdeildunum. Strákarnir sækja Selfyssinga heim en stelpurnar okkar eiga heimaleik á móti ÍBV. Sérstakt kynningarkvöld verður í KA-Heimilinu kl. 20:00 í kvöld og hvetjum við alla sem geta til að mæta.
Eins og undanfarin ár verður ársmiðasala liðanna í Stubb en ársmiðinn veitir aðgang að heimaleikjum í Olísdeildinni. Nú í fyrsta skipti bjóðum við sérstakan ársmiða fyrir 17-22 ára á lægra verði og vonumst við að vel verði tekið í það framtak.
Einnig býður karlalið KA upp á sérstaka VIP ársmiða en miðinn veitir aðgang að öllum heimaleikjum liðsins í öllum keppnum ásamt hamborgara og drykkjum á öllum leikjunum.