Flýtilyklar
Arnór Ísak og Haraldur Bolli í U19
16.06.2021
Handbolti
KA á tvo fulltrúa í æfingahóp U19 ára landsliðs Íslands í handbolta sem undirbýr sig fyrir EM í Króatíu sem fer fram í sumar. Þetta eru þeir Arnór Ísak Haddsson og Haraldur Bolli Heimisson en báðir hafa þeir fengið tækifærið með meistaraflokksliði KA í vetur.
Heimir Ríkarðsson og Gunnar Andrésson eru þjálfarar hópsins en hópurinn fer í mælingar á vegum HR föstudaginn 18. júní og æfir svo dagana 24.–27. júní. Eftir þessar æfingar verður hópurinn skorinn niður en EM í Króatíu fer fram 12.–22. ágúst næstkomandi.
Við óskum Arnóri og Haraldi til hamingju með valið sem og góðs gengis á komandi æfingum.