Drífa stóð sig vel á HM í kraftlyftingum

Drífa stóð heldur betur fyrir sínu í Þýskalandi
Drífa stóð heldur betur fyrir sínu í Þýskalandi

Drífa Ríkharðsdóttir, lyftingakona úr KA, keppti á HM í klassískum kraftlyftingum í Þýskalandi nýverið. Drífa átti flott mót með samanlagðan árangur upp á 392,5 kg.

Drífa byrjaði mótið vel í hnébeygju með öruggri lyftu upp á 127,5 kg. Í annarri umferð lyfti hún 135 kg fumlaust. Því miður náðust 140 kg, sem hefðu verið persónuleg bæting, ekki upp í þriðju tilraun.

Í bekkpressunni opnaði Drífa á 82,5 kg sem fóru upp en voru dæmd ógild vegna tæknivillu. Hún lét það ekki á sig fá og tók sömu þyngd örugglega í annarri tilraun. Í þriðju umferð hækkaði hún um 5 kg og lyfti örugglega 87,5 kg.

Réttstöðulyftan hófst með flottri 170 kg lyftu hjá Drífu. Hún reyndi við 180 kg í annarri umferð og þótt þyngdin færi upp var lyftan dæmd ógild vegna tæknivillu. Í þriðju tilraun reif Drífa þyngdina aftur upp en missti jafnvægið lítillega og náði ekki að klára lyftuna sem skyldi. Engu að síður sannaði Drífa að styrkurinn er svo sannarlega til staðar.