Jafnréttisáætlun KA

Jafnréttisáætlun KA byggir á lögum nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Jafnréttisáætlunin er jafnframt byggð á vinnu Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og Jafnréttisstofu um gerð jafnréttisáætlana fyrir íþróttafélög og leiðbeiningar þess efnis.

Iðkendur

Markmið Aðgerð Ábyrgð Tímarammi Eftirlitshlutverk

Bæði kyn, í sömu íþróttagrein og á sama aldri, fái jafn marga og sambærilega æfingatíma.

Kynin hafi sambærilega aðstöðu/aðbúnað.

Úttekt á æfingatíma kynja í sömu íþróttagrein og á sama aldri.

Úttekt á aðbúnaði og aðstöðu kynja í sömu grein og á sama aldri. Leiðrétta kynbundinn mun ef er.

Stjórn eða íþróttastjóri Árlega Jafnréttisfulltrúi KA

Samræmi í fjárveitingum til íþróttagreina eftir kynjum.

Kynjunum er ekki mismunað í fréttum eða í öðru efni sem félagið sendir frá sér.

Úttekt á því hvernig fjármagni er skipt milli íþróttagreina eftir kynjum.

Úttekt á fréttum og öðru efni sem félagið sendir frá sér m.t.t. kyns. Leiðrétta kynbundinn mun ef er.

Stjórn eða íþróttastjóri Árlega Jafnréttisfulltrúi KA

Verðlaun beggja kynja innan allra flokka og greina eru sambærileg.

Samstarfsaðilar þekki stefnu félagsins í jafnréttismálum.

Úttekt á verðlaunum eftir kyni.

Leiðrétta kynbundinn mun ef er.

Jafnréttisstefna félagsins kynnt fyrir samstarfsaðilum.

Stjórn eða íþróttastjóri Árlega Jafnréttisfulltrúi KA
Vinna gegn staðalmyndum kynjanna.

Úttekt á fjölda iðkenda innan hverrar íþróttagreinar eftir kyni.

Gæta þess að bæði kynin eigi jafna möguleika til iðkunar íþróttagreinar/- greina.

Stjórn eða íþróttastjóri Árlega Jafnréttisfulltrúi KA
Koma í veg fyrir kynbundið ofbeldi, kynbundna áreitni og kynferðislega áreitni innan félagsins.

Fræðsla fyrir þjálfara. Vinna forvarnar- og viðbragðsáætlun.

Forvarnar og viðbragðsáætlunin kynnt fyrir starfsfólki.

Stjórn eða íþróttastjóri Árlega Jafnréttisfulltrúi KA

 

Þjálfarar

Markmið Aðgerð Ábyrgð Tímarammi Eftirlitshlutverk

Þjálfarar eru vel menntaðir og vel að sér um jafnrétti kynjanna.

Þjálfarar njóta sömu launa og kjara fyrir sömu eða sambærileg störf og hafa sömu tækifæri til að afla sér þekkingar.

Fræðsla um jafnrétti kynjanna fyrir þjálfara, stjórn og starfsfólk félagsins.

Úttekt á menntun, launum og launakjörum þjálfara m.t.t. kyns.

Leiðrétta kynbundinn mun ef er.

Stjórn eða íþróttastjóri Árlega Jafnréttisfulltrúi KA

 

Nefndir og ráð

Markmið Aðgerð Ábyrgð Tímarammi Eftirlitshlutverk

Hlutfall kynjanna í nefndum, ráðum og stjórnum félagsins er sem jafnast og endurspeglar hlutfall iðkenda í viðkomandi íþróttagrein.

Bæði kynin koma fram fyrir hönd félagsins.

Úttekt á nefndum, ráðum og stjórnum félagsins m.t.t. kyns.

Úttekt á hverjir koma fram fyrir hönd félagsins m.t.t. kyns.

Leiðrétta kynbundinn mun ef er.

Stjórn eða íþróttastjóri Árlega Jafnréttisfulltrúi KA

 

Eftirfylgni/Endurskoðun

Jafnréttisáætlunin á að vera virk í öllu starfi félagsins, hún á að vera lifandi plagg sem tekur breytingum þegar þurfa þykir. Árlega fer stjórn félagsins yfir jafnréttisáætlunina og metur árangur verkefna. Hvað gerum við vel? Hvað getum við gert betur?

Markmið Aðgerð Ábyrgð Tímarammi

Jafnréttisáætlunin sé virk í öllu starfi félagsins.

Jafnréttisáætlunin er í sífelldri þróun.

Áætlunin og árangur verkefna kynnt innan félagsins og birt á heimasíðu.

Fara yfir jafnréttisáætlunina og uppfæra m.t.t. árangurs og reynslu.

Stjórn og jafnréttisfulltrúi Árlega
Jafnréttisáætlunin er endurskoðuð á fjögurra ára fresti.

Tillaga að nýrri jafnréttisáætlun lögð fram byggð á fyrri reynslu.

Ný jafnréttisáætlun til næstu fjögurra ára samþykkt og tekur gildi.

Stjórn og jafnréttisfulltrúi Fjórða hvert ár