KA telur mjög mikilvægt að öllum líði vel í íþróttaiðkun sinni. Samskipti eiga að einkennast af gagnkvæmri virðingu og kurteisi. KA leggur áherslu á að samskiptin séu jákvæð og uppbyggileg. Það er mikilvægt að allir, iðkendur, þjálfarar, starfsfólk KA og foreldrar, standi saman og vinni gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Til þess að bregðast við tilkynningum um grun um einelti hefur KA útbúið viðbragðsáætlun sem var formlega tekin í gagnið vorið 2019.
Fái félagið vísbendingar eða tilkynningar um ofbeldisverk eða aðra óæskilega hegðun af hvaða tagi sem það kallast þá er því vísað til viðurkendra fagaðila sem munu vinna málið áfram. Telji iðkendur sig verða fyrir slíku ofbeldi eða ósæskilegri hegðun má benda á að hægt er að tilkynna um allt ofbeldi til Æskulíðsvettvangsins auk þess sem Samskiptaráðgjafi á vegum Íþrótta- og Ólympíusamands Íslands er til staðar fyrir alla sem vilja tilkynna slík mál. Sjá nánar í handbók KA undir fræðslur og forvarnir.
Viðbragðsáætlun KA á eineltismálum á pdf formi með tilkynningarblaði
Yfirlitsmynd yfir verkferil KA á meintu einelti á pdf formi
Þegar einstaklingur verður endurtekið fyrir neikvæðu eða illgirnislegu atferli á afmörkuðu tímabili frá einum eða fleiri aðilum. Birtingarmyndir eineltis geta verið líkamlegar, andlegar eða félagsleg einangrun (Olweus, 2005).
Viðbragðsáætlun KA gegn einelti
Komi upp grunur um einelti – útskýringar á verkferli
Þjálfari/starfsmaður KA tekur við tilkynningum um grun um einelti frá iðkanda/foreldri.
Ef foreldri/forráðamaður tilkynnti grun um einelti og rannsóknarvinnan staðfestir að ekki er um einelti að ræða, þarf að láta foreldra/forráðamenn vita hvað kom út úr rannsóknarvinnunni.
* Hér ræðir þjálfari við 2-3 iðkendur sem kannast vel við meintan þolanda. Ekki rætt við alla saman, heldur í sitthvoru lagi og ekki fyrir framan aðra iðkendur. Meintur þolandi er ekki nafngreindur í þessum samtölum.
Það er mjög mikilvægt að minna iðkendur á að það er trúnaður, þannig að nöfnin þeirra koma ekki við sögu ef þeir segja frá einhverju.
Dæmi um spurningar sem þjálfari spyr:
- Hefur þú orðið var við að einhver í hópnum sé skilin útundan/er mikið skammaður af öðrum í hópnum /komið illa fram við/ o.s.frv.? Biðja um nöfn.
- Hefur þú orðið var við að einhverjum líði illa í hópnum. Biðja um nöfn o Ef já, af hverju heldurðu að viðkomandi líði illa.
- Myndir þú þora að segja mér frá ef þú vissir að einhver í hópnum væri með framkomu við aðra í hópnum sem væri athugaverð?
**Hér er mikilvægt að grípa alltaf inn í og stöðva andfélagslega hegðun. Því næst er hægt að skrá hjá sér stund og stað, aðila og staðreyndir (ekki huglægt mat). Þessum upplýsingum er komið til þjálfara og fagráðs. Sjá skráningarblað²
Ef rannsóknarvinnan staðfestir grun um einelti þá fer eftirfarandi ferli í gang:
Ef eineltið hættir ekki þá fer gerandi/gerendur í æfingabann (sjá nánar í viðauka um leiðbeiningum um gerandaviðtal³).