Danni Matt snýr aftur heim!

Danni og Andri Snær sáttir við undirritunina í KA-Heimilinu í dag
Danni og Andri Snær sáttir við undirritunina í KA-Heimilinu í dag

Handknattleiksliði KA barst í dag ansi góður liðsstyrkur fyrir komandi átök í vetur er Daníel Matthíasson skrifaði undir hjá félaginu. Danni sem er þrítugur varnarjaxl og öflugur línumaður er uppalinn hjá KA snýr nú aftur heim eftir farsæla veru hjá FH.

Danni lék sína fyrstu meistaraflokksleiki með sameiginlegu liði Akureyrar Handboltafélags árið 2012 en gekk í raðir FH árið 2014. Hann sneri aftur heim í KA árið 2018 þar sem hann myndaði magnað varnarteymi með Daða Jónssyni en Daði skrifaði undir nýjan samning á dögunum og verður ansi spennandi að sjá þá félaga aftur í hjarta KA varnarinnar.

Hann hélt af stað suður eftir farsæl ár með KA liðinu og hóf í kjölfarið að leika með FH veturinn 2022-2023 og varð hann Íslandsmeistari með liðinu árið 2024.

Eins og áður segir er Danni gríðarlega öflugur varnarmaður sem er einnig afar kvikur og skiptir því engu hvort leikin er 6-0 eða fljótandi 3-2-1 vörn, Danni leysir sitt með glæsibrag. Það er afar sterkt að fá Danna aftur heim og verður ákaflega spennandi að fylgjast með framgöngu hans í vetur.