Helga stóð sig vel í Danmörku

Helga Hansdóttir náði þeim frábæra árangri að ná 1. og 3ja sæti á alþjóðlegu dönsku unglingameistaramóti í dag.  Hún keppti í aldursflokknum 17-21 árs en þar sem hún er aðeins 17 ára gömul gerir það árangur hennar enn glæsilegri. Helga sigraði opna flokkin í sínum aldursflokki og lenti í 3ja sæti í -63kg. flokki. 

Helgu hefur gengið afar vel á alþjóðlegum mótum að undanförnu.  Hún lenti í 5. sæti á mjög stóru alþjóðlegu móti í Svíþjóð í haust.  Þar var hún aðeins hársbreidd frá þriðjasætinu.  Auk þess náði hún 3ja sæti á Norðurlandamótinu í vor.

Júdódeild KA óskar Helgu til hamingju með árangurinn.
Lesa meira

Kyu-mótið um helgina fellur niður vegna veðurs.

Kyu-mót JSÍ sem halda átti á Akureyri nú um helgina hefur verið frestað vegna veðurs. 

Mótið verður haldið við fyrsta tækifæri og að sjálfsögðu hér á Akureyri.

Lesa meira

Júdóæfingar hefjast mánudaginn 6. september

Mánudaginn 6. september munu æfingar hefjast hjá öllum aldursflokkum júdódeildar KA.  Æfingagjöld í júdó eru þau sömu og hafa verið undanfarin ár.  Við leggjum mikið upp úr því að æfingagjöld séu í algjöru lágmarki svo að sem flestir geti æft júdó.   

Æfingataflan er eftirfarandi:

 

Lesa meira

Sumaræfingar í júdó

Sumardgagskrá:
Mánudaga kl. 20:00 - júdó
Þriðjudaga kl. 20:00 - þrek á Hrafnagili
Miðvikudaga kl. 20:00 - júdó
Fimmtudaga kl. 20:00 - þrek á Hrafnagili
Föstudaga kl. 20:00 - júdó
Sunnudaga kl. 10:00 - þrek á Hrafnagili
Lesa meira

Steinar Eyþór Valsson Norðurlandameistari í júdó yngi en 20 ára.

Í dag var framhaldið í Reykjavík Norðurlandamóti í júdó.  Í dag var keppt í aldursflokki yngri en 20 ára.  KA eignaðist þar sinn annan Norðurlandameistara á þessu móti er Steinar Eyþór Valsson sigraði með glæsibrag í -100kg.  Steinar er gríðarlega efnilegur júdómaður sem hefur alla burði til að verða verulega góður.
Lesa meira

Hans Rúnar Norðurlandameistari í júdó 30 ára og eldri

Norðurlandamótið í júdó fer nú fram í Reykjavik.  Í dag var keppt í flokkum fullorðinna og 30 ára og eldri.  Hans Rúnar Snorrason gerði sér lítið fyrir og sigraði glæsilega í -73kg flokki karla eldri en 30 ára.  Hans sigraði norðmann í úrslitaglímunni með mjög sannfærandi hætti.
Lesa meira

Það er komið sumarfrí hjá yngri flokkum í júdó.

Nú erum við komin í sumarfrí í júdó hjá yngri flokkum.  Meistaraflokkur æfir áfram í sumar en dagskráin hjá þeim breytist í næstu viku og verður það tilkynnt hér á heimasíðunni eftir næstu helgi.
Lesa meira

Mjög vel heppnuð lærdómsferð 9-14 ára júdókrakka.

Þeir júdókrakkar sem æfa með flokkum 9-14 ára hjá KA fóru til Reykjavíkur nú um helgina til þess að æfa með jafnöldrum sínum af öllu landinu.  Tilgangur ferðarinnar var að kynnast jafnöldrum sínum sem eru einnig að æfa júdó án þess að keppni sé blandað þar inn í.  Einnig að fá tækifæri til þess að læra af öðrum þjálfurum.
Lesa meira

Skipting verðlauna á Íslandsmótum 2010

Nú þegar Íslandsmótum vetrarins er lokið þá er gaman að skoða hvernig skipting verðlauna hefur verið.  Hér á eftir er samantekt um skiptinguna:

Félag:

Gull:

Silfur:

Brons:

Samtals:

JR

22

16

13

51

KA

10

14

12

36






Ármann

11

5

5

21

ÍR

1

8

10

19

Selfoss

7

4

6

17

Grindavik

2

3

3

8

Þróttur

 

1

2

3

Samherjar

2

 

 

2

Vinir okkar í JR er með langbestan árangur og er ástæða til þess að óska þeim til hamingju með það.  Við í KA getum mjög vel við unað, við erum í öðru sæti og einnig getum við hæglega talið með okkar árangri fóstbræður okkar í Samherjum sem æfa með okkur.  Annars er ánægjulegt að sjá hversu mörg félög eru að standa sig vel, sérstaklega er fjöldi gullverðlauna hjá Selfyssingum verulega flottur.
Lesa meira

Íslandsmót fullorðinna í júdó, 11 verðlaun.

Íslandsmót fullorðinna í júdó fór fram nú um helgina.  KA átti þar 12 keppendur og unnu þau til 11 verðlauna.  Bestum árangri náði Helga Hansdóttir, en hún varð Íslandsmeistari í -63kg. flokki.  Árangur keppenda KA varð annars þessi:
Lesa meira

Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is