Stubbur framlengir út næsta tímabil

Fótbolti

Steinþór Már Auðunsson eða Stubbur eins og hann er iðulega kallaður skrifaði í dag undir nýjan eins árs samning við knattspyrnudeild KA og er nú samningsbundinn félaginu út sumarið 2025.

Stubbur sem er uppalinn hjá KA hefur verið einn besti markvörður Bestudeildarinnar undanfarin ár og átti heldur betur risastóran þátt í því að KA stóð uppi sem Bikarmeistari í fyrsta skiptið í sögunni en seint í uppbótartíma átti hann stórkostlega vörslu er staðan var 1-0.

Stubbur lék sína fyrstu meistaraflokksleiki fyrir KA sumarið 2007, þá aðeins 17 ára gamall. Frá árinu 2010 lék hann með Völsung, Dalvík/Reyni, Þór og Magna. Með Magna var hann lykilleikmaður í ævintýrinu í næstefstu deild áður en hann sneri loks aftur heim í KA árið 2021.

Það ár var hann valinn besti leikmaður KA auk þess að vera valinn besti markvörður tímabilsins af sérfræðingum Pepsi Max stúkunnar og valinn í úrvalslið Morgunblaðsins.

Í dag hefur hann leikið 80 leiki fyrir KA í deild, bikar og Evrópu og ljóst að þeir verða eitthvað fleiri eftir þessar frábæru fréttir.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is