Siguróli Sigurðsson heiðursfélagi fallinn frá

Almennt

Siguróli Sigurðsson heiðursfélagi KA féll frá í morgun en Siguróli var níræður. Siguróli var svo sannarlega ómetanlegur sjálfboðaliði í starfi KA og markaði djúp spor í sögu félagsins. Hann hóf ungur að vinna fyrir félagið og gerði það í raun alla sína ævi.

Þormóður Einarsson og Siguróli taka hér fyrstu skóflustunguna að núverandi gervigrasvelli okkar KA-manna árið 2013

Siguróli lék knattspyrnu með liði KA sem og liði ÍBA við góðan orðstír og gegndi svo sem stjórnarmaður í knattspyrnudeild félagsins. Siguróli var alltaf til í að gefa sig allan fyrir KA og var í lykilhlutverki við að koma af stað og byggja upp N1 mótið okkar sem er stærsta yngriflokkamót landsins í dag.

Siguróli tekur hér upphafssparkið á Greifavellinum síðasta sumar ásamt Þormóði Einarssyni. Með Siguróla stendur sonur hans Magnús.

Á sínum efri árum hafði hann áfram daglega komu í KA-Heimilið þar sem hann hafði umsjón með kjallaraklúbbnum. Siguróla verður svo sannarlega sárt saknað og sendum við innilegar samúðarkveðjur til aðstandenda hans og vina.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is