Örfréttir KA - 26. mars 2018

Almennt | Fótbolti | Handbolti | Júdó | Blak

Eins og oft áður þá var mikið um að vera í KA starfinu í liðinni viku og er örfréttapakki vikunnar stútfullur. Endilega kynntu þér hvað er að gerast hjá félaginu.

Handbolti

KA vann Ungmennalið Vals 26-22 í lokaumferð Grill 66 deildarinnar. Áki Egilsnes var markahæstur með 9 mörk og Sigþór Gunnar Jónsson gerði 6. Framundan er umspil um laust sæti í efstu deild að ári og er KA liðið með heimaleikjarétt í þeirri baráttu en liðið leikur næst 21. apríl. Þróttur og HK keppa á næstunni um hvort liðið mætir KA í umspilinu.

U-20 kvennalandslið Íslands tryggði sér um helgina sæti á HM í sumar með flottum sigrum á Litháen og Makedóníu. Í liðinu eru þær Ásdís Guðmundsdóttir og Aldís Ásta Heimisdóttir leikmenn KA/Þórs og óskum við þeim ásamt öllu liðinu til hamingju með áfangann.

Blak

Í blakinu unnu Deildar- og Bikarmeistarar KA Aftureldingu 3-1 í þriðja leik liðanna í undanúrslitum Mizunodeildar karla á mánudaginn. Leikir liðanna hafa verið jafnir og flottir en KA leiðir nú einvígið 2-1 og þarf því aðeins einn sigur í viðbót til að komast áfram í úrslitaeinvígið. Næsti leikur liðanna verður 4. apríl í Mosfellsbæ.

Kvennalið KA féll hinsvegar úr leik eftir tvö töp gegn Stjörnunni. Garðbæingar unnu fyrri leikinn 3-0 en í þeim síðari tókst KA stelpum að knýja fram oddahrinu eftir að Stjarnan hafði komist í 2-0. Það dugði því miður ekki og er KA liðið því komið í sumarfrí.

Fótbolti

Íslandsmeistarar Þór/KA unnu FH 3-1 í Boganum en með sigrinum tryggði liðið sér sæti í undanúrslitum Lengjubikarsins. Margrét Árnadóttir, Anna Rakel Pétursdóttir og Hulda Ósk Jónsdóttir gerðu mörk okkar liðs. Í vikunni kemur í ljós hverjir mótherjar liðsins verða í næstu umferð.

Aðalfundur knattspyrnudeildar KA verður haldinn í KA-Heimilinu á þriðjudaginn klukkan 20:00, hvetjum áhugasama til að mæta.

Júdó

Vormót Júdósambands Íslands var haldið í KA-Heimilinu á laugardaginn og var keppt í 8 mismunandi flokkum. Keppendur á vegum KA unnu sigra í fjórum flokkum og voru það þau Hekla Pálsdóttir, Alexander Heiðarsson, Dofri Bragason og Helgi Guðnason. Júdó kom aftur inn í KA nú í vetur og var mikil ánægja með mótið um helgina

Næstu leikir

Næsta vika er óvenju róleg enda páskar framundan. Það er þó stórleikur í fótboltanum þegar KA tekur á móti Grindavík í undanúrslitum Lengjubikarsins á KA-vellinum á Skírdag klukkan 14:00. Strákarnir unnu alla leikina í riðlakeppninni og ætla sér í úrslitaleikinn. Hvetjum að sjálfsögðu alla til að mæta og styðja liðið til sigurs


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is