Flýtilyklar
Hilmar Bjarki framlengir um tvö ár
Hilmar Bjarki Gíslason skrifađi á dögunum undir nýjan tveggja ára samning viđ handknattleiksdeild KA og er nú samningsbundinn félaginu út tímabiliđ 2024-2025. Ţetta eru afar góđar fréttir en Himmi sem verđur tvítugur í sumar hefur unniđ sig jafnt og ţétt í stćrra hlutverk í okkar öfluga liđi.
Himmi sem er uppalinn hjá KA lék sína fyrstu meistaraflokksleiki tímabiliđ 2021-2022 og tók ţátt í öllum leikjum liđsins á nýliđnu tímabili. Auk ţess lék hann 6 leiki međ ungmennaliđi KA í Grill66 deildinni ţar sem KA U endađi í 5. sćti.
Himmi hefur vakiđ verđskuldađa athygli fyrir framgöngu sína í vörn KA-liđsins og ţá hefur hann veriđ ađ bćta sóknarleikinn ţar sem hann leikur á línunni. Ţađ eru frábćrar fréttir ađ Himmi taki áfram slaginn međ KA-liđinu og verđur áfram gaman ađ fylgjast međ framgöngu hans í gula og bláa búningnum.