Helga stóð sig vel í Danmörku

Júdó
Helga Hansdóttir náði þeim frábæra árangri að ná 1. og 3ja sæti á alþjóðlegu dönsku unglingameistaramóti í dag.  Hún keppti í aldursflokknum 17-21 árs en þar sem hún er aðeins 17 ára gömul gerir það árangur hennar enn glæsilegri. Helga sigraði opna flokkin í sínum aldursflokki og lenti í 3ja sæti í -63kg. flokki. 

Helgu hefur gengið afar vel á alþjóðlegum mótum að undanförnu.  Hún lenti í 5. sæti á mjög stóru alþjóðlegu móti í Svíþjóð í haust.  Þar var hún aðeins hársbreidd frá þriðjasætinu.  Auk þess náði hún 3ja sæti á Norðurlandamótinu í vor.

Júdódeild KA óskar Helgu til hamingju með árangurinn.

Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is