Lokahóf júdódeildar var haldið s.l. laugardag (Myndir)

Júdó
Lokahóf júdódeildar var haldið s.l. laugardag (Myndir)
Ódi stýrir mótinu
Júdódeild KA fagnaði lokum vetrarins með því að halda júdómót fyrir yngstu iðkendur deildarinnar. Í kjölfarið var öllum iðkendum og foreldrum þeirra boðið í pizzuveislu. Nú fara allar júdóæfingar yngri iðkenda í sumarfrí en þráðurinn verður svo tekinn upp næsta haust.

Jón Óðinn, Ódi, stýrði mótinu og Hrefna G. Torfadóttir formaður KA afhenti þessum ungu júdóköppum verðlaun.

Hér eru nokkrar myndir frá deginum.











Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is