Flýtilyklar
Flott uppskera á Íslandsmótinu í júdó
16.04.2018
Júdó
Iðkendur í júdódeild KA hömpuðu alls 5 Íslandsmeistaratitlum á Íslandsmóti yngri flokka í júdó um helgina. KA átti 17 keppendur á Íslandsmótinu sem kepptu í 19 flokkum en alls var keppt í 28 flokkum á mótinu og því fín þátttaka hjá félaginu.
Berenika Bernat gerði sér lítið fyrir og varð Íslandsmeistari í -63 kg flokki kvenna bæði í U-18 og U-21! Þá varð Gylfi Edduson Íslandsmeistari í -60 kg flokki í U-18, Ólafur Jónsson sigraði +90 kg flokk U-18 og Baldur Bergsveinsson vann -90 kg flokk U-21.
Við óskum þeim til hamingju með titilinn og öllum okkar keppendum til hamingju með flottan árangur en hér má sjá lokastöðu okkar keppenda.
Flokkur | Nafn | Sæti |
Dr. U13 -80 | Elsa Viktorsdóttir | 4. |
Dr. U13 -38 | Hreiðar Arnarsson | 2. |
Dr. U15 -38 | Daníel Þórisson | 2. |
Dr. U15 -46 | Birkir Bergsveinsson | 2. |
Dr. U15 -55 | Ísabella Heiðarsdóttir | 2. |
St. U18 -63 | Berenika Bernat | 1. |
St. U18 -70 | Hekla Pálsdóttir | 2. |
Dr. U18 -50 | Árni Arnarsson | 3. |
Dr. U18 -55 | Hannes Sigmundsson | 2. |
Dr. U18 -60 | Gylfi Edduson | 1. |
Dr. U18 -60 | Ísak Ingólfsson | 4. |
Dr. U18 +90 | Ólafur Jónsson | 1. |
St. U21 -63 | Berenika Bernat | 1. |
St. U21 -70 | Hekla Pálsdóttir | 2. |
Dr. U21 -66 | Alexander Heiðarsson | 2. |
Dr. U21 -73 | Birgir Arngrímsson | 3. |
Dr. U21 -81 | Skafti Hannesson | 2. |
Dr. U21 -90 | Baldur Bergsveinsson | 1. |
Dr. U21 +100 | Hilmar Jórunnarson | 2. |