Flýtilyklar
Frítt á fyrsta heimaleik ársins!
02.02.2023
Handbolti
Olísdeild karla í handboltanum fer loksins aftur af stað með alvöru landsbyggðarslag í KA-Heimilinu á laugardaginn þegar strákarnir okkar taka á móti Herði í fyrsta leiknum í tæpa tvo mánuði og við ætlum okkur mikilvægan sigur með ykkar stuðning!
Leikurinn hefst klukkan 15:00 og bjóða Slippurinn og Bílaleiga Akureyrar þér frítt á leikinn, það er því eina vitið að mæta á leikinn og tryggja tvö stig í hús, áfram KA!
Fyrir þá sem ekki komast í KA-Heimilið er leikurinn í beinni á livey.events/ka-tv fyrir 1.000 kr.