Flýtilyklar
Myndaveislur frá Evrópusigri KA
KA vann stórglæsilegan 2-0 sigur á liði Connah's Quay Nomads frá Wales í fyrri leik liðanna í undankeppni Sambandsdeildar UEFA á Framvellinum í gær. KA var þarna að leika sinn fyrsta Evrópuleik í knattspyrnu í 20 ár og strákarnir í góðri stöðu fyrir síðari leikinn.
Þórir Tryggvason og Egill Bjarni Friðjónsson ljósmyndarar voru á svæðinu og bjóða báðir upp á myndaveislu frá leiknum og stemningunni. Kunnum þeim bestu þakkir fyrir framtakið.
Smelltu á myndina til að skoða myndir Þóris Tryggva frá leiknum
KA vann þarna sinn annan leik í Evrópu en fyrsti Evrópuleikur KA var sumarið 1990 gegn Búlgarska stórliðinu CSKA Sofia og vannst hann 1-0 með marki Hafsteins Jakobssonar. Í heildina hefur KA nú leikið fimm leiki í Evrópu, tveir hafa unnist, tveir endað með jafntefli og aðeins einn leikur tapast.
Frábær stemning myndaðist á Framvellinum í gær en alls mættu um 930 áhorfendur á leikinn og létu vel í sér heyra. Hallgrímur Mar Steingrímsson kom KA yfir með stórglæsilegu marki á 60. mínútu og Daníel Hafsteinsson fylgdi í fótspor föður síns þegar hann tvöfaldaði forystuna skömmu fyrir leikslok og lokatölur því 2-0 sigur.
Smelltu á myndina til að skoða myndir Egils Bjarna frá leiknum
Liðin mætast aftur á fimmtudaginn í Oswestry í Englandi og spennandi að sjá hvort strákarnir okkar nái að klára einvígið og tryggja sér sæti í næstu umferð þar sem Dundalk frá Írlandi eða Magpies frá Gíbraltar bíða.