Hallgrímur Mar framlengir út 2025!

Fótbolti
Hallgrímur Mar framlengir út 2025!
Stórkostleg tíđindi fyrir Evrópuferđina!

Hallgrímur Mar Steingrímsson skrifađi í dag undir nýjan tveggja ára samning viđ knattspyrnudeild KA og er nú samningsbundinn út sumariđ 2025. Ţetta eru stórkostlegar fréttir enda Grímsi algjör burđarás í KA liđinu og heldur betur skrifađ nafn sitt í sögu félagsins.

Grímsi lék á dögunum sinn 300 leik fyrir KA en hann er nú kominn međ 301 leik í deild, bikar og Evrópu fyrir KA og er hann leikjahćsti leikmađur í sögu félagsins. Af ţessum leikjum eru 147 í efstu deild sem er einnig félagsmet en hann hefur ekki misst af deildarleik međ KA frá ţví ađ KA tryggđi sér sćti í efstu deild sumariđ 2016.

Ţá hefur Grímsi skorađ 91 mark í ţessum leikjum sem er félagsmet og eru 47 af ţeim í efstu deild sem er enn eitt metiđ sem ţessi magnađi kappi á hjá KA. Ţá skorađi hann 500. mark KA í sögu efstudeildar síđasta sumar er hann tryggđi KA 2-1 sigur á Breiđablik síđasta sumar.

Enn eitt blađiđ braut Grímsi á dögunum er KA vann 2-0 sigur á liđi Connah's Quay Nomads í undankeppni Sambandsdeildar UEFA á dögunum er hann kom KA í 1-0 en ţetta var fyrsta mark hans í Evrópukeppni sem og hans fyrsti leikur í Evrópu fyrir KA.

Ţrívegis hefur Hallgrímur skorađ ţrennu fyrir KA en hann gerđi fyrst ţrennu í heimaleik gegn ÍBV í efstu deild sumariđ 2017. Sumariđ 2019 gerđi hann svo ţrennu í bikarleik gegn Sindra en hann gerđi ţrennuna á ađeins tíu mínútna kafla. Ţá skorađi hann einnig ţrennu gegn Gróttu á Seltjarnarnesi sumariđ 2020 er liđin mćttust í efstu deild.

Kappinn er uppalinn hjá Völsung á Húsavík en kom átján ára til liđs viđ KA fyrir sumariđ 2009. Síđan ţá hefur hann veriđ algjör lykilmađur í liđi KA og í ţeirri uppbyggingu sem hefur átt sér stađ innan liđsins síđan ţá er liđiđ fór úr ţví ađ leika í nćstefstu deild í ađ berjast á toppi Bestudeildarinnar og leika í Evrópu.

Ţađ eru heldur betur stórkostlega fréttir ađ Grímsi hafi framlengt samning sinn viđ KA og ljóst ađ ţessi magnađi kappi mun halda áfram ađ endurskrifa söguna međ KA. Framundan eru ansi stórir leikir en á fimmtudaginn sćkja strákarnir Connah's Quay heim í síđari leiknum í Evrópukeppninni og freista ţess ađ tryggja sér sćti í nćstu umferđ. Ţá er sjálfur bikarúrslitaleikurinn framundan ţann 26. ágúst en ţetta verđur í fyrsta sinn frá árinu 2004 sem KA leikur til úrslita í bikarnum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is