Birgir Baldvinsson framlengir út 2027

Fótbolti

Birgir Baldvinsson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við knattspyrnudeild KA og er nú samningsbundinn út sumarið 2027. Þetta eru stórkostlegar fréttir enda hefur Biggi verið gríðarlega öflugur í gula og bláa búningnum og afar jákvætt að halda honum innan okkar raða.

Biggi sem er 23 ára gamall vinstri bakvörður er uppalinn hjá KA og hefur leikið 31 leik fyrir félagið í deild, bikar og evrópu. Meðfram því að leika með KA hefur Biggi stundað krefjandi nám í Bandaríkjunum en vegna námsins hefur hann þurft að yfirgefa herbúðir KA á miðju sumri í ár sem og í fyrra.

Hann er nú að klára námið ytra og ljóst að það verður gífurlegur styrkur að njóta krafta hans næstu árin en auk þess að vera öflugur leikmaður er Biggi frábær félagsmaður og lifir svo sannarlega fyrir félagið okkar.

Biggi lék sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir KA sumarið 2018 en hann lék á láni sumrin 2020-2022 með Aftureldingu og Leikni þar sem hann vakti verðskuldaða athygli fyrir framgöngu sína. Þá hefur hann verið að leika með háskólaliði Wisconsin á meðan náminu ytra stendur yfir.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is