SBA - Norðurleið styður við yngriflokkastarf KA

Almennt
SBA - Norðurleið styður við yngriflokkastarf KA
Sævar og Gunnar handsala samninginn góða

SBA - Norðurleið hefur gert samkomulag við yngriflokkastarf KA um spennandi samstarf sem miðar að því að efla þátttöku barna og unglinga í íþróttum. Gunnar M. Guðmundsson framkvæmdastjóri SBA - Norðurleiðar og Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA undirrituðu samninginn við hátíðlega athöfn.

"Samstarfið er spennandi skref sem mun skapa enn betri skilyrði fyrir iðkendur yngriflokka KA og mun styðja vð framtíð þeirra í íþróttum. Okkur er umhugað um öryggi iðkenda okkar og SBA - Norðurleið er gríðarlega traust félag sem hefur ávallt öryggi farþega sinna í fyrsta sæti og því vildum koma á samstarfi" segir Siguróli, íþróttastjóri KA.

Samstarfið felur í sér að SBA - Norðurleið aðstoðar yngriflokka KA með fjárframlögum sem nýtist yngstu iðkendum KA, þeim er nýta sér Frístundaakstur á æfingar. Samstarfið endurspeglar gildi beggja aðila um öryggi og samfélagslega ábyrgð.

Við erum ákaflega þakklát SBA - Norðurleið að styðja við yngriflokkastarfið hjá okkur og hlökkum til samstarfsins.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is