Jákvæður fundur með framboðum sveitastjórnakosninga 2022

Almennt

Stórskemmtilegur hádegisfundur var haldinn í KA-heimilinu í dag þegar fulltrúar framboða til sveitastjórnakosninga á Akureyri mættu til þess að ræða málefni íþrótta og uppbyggingu íþróttamannvirkja á Akureyri. Fulltrúar allra framboða mættu nema Pírata sem boðuðu forföll og Kattarframboðsins sem svöruðu ekki boðinu.

Eiríkur S. Jóhannsson, formaður KA, fór yfir forsögu og stöðu KA í uppbyggingarmálum og reifaði m.a. söguna að KA hefði búið við nánast sömu aðstöðuna á félagssvæði sínu frá árinu 1991 þegar að íþróttahús KA-manna var byggt og vígt, að gerfigrasæfingavellinum undanskildum sem tekinn var í notkun 2013.

Í kjölfar ákvörðunar Akureyrarbæjar að byggja upp keppnis og félagsaðstöðu fjölgreinafélaganna í sitt hvorum bæjarhlutanum, þá hefur KA beðið eftir efndum á uppbyggingu á KA svæðinu, eða allt frá því að bæjarstjórn óskaði eftir frestun á uppbyggingu á KA svæðinu í kjölfar bankahruns 2008, en þá var nýbyrjað að grafa fyrir nýjum keppnisvelli á KA svæðinu.


Eiríkur formaður KA fer yfir byggingarplön á KA-svæðinu

Nú væru hinsvegar farnar í gang viðhaldsframkvæmdir á gervigrasvellinum og í kjölfarið, í lok þessa árs, hæfust framkvæmdir við keppnisvöll KA-manna á KA-svæðinu. Sú framkvæmd verður mikil lyftistöng fyrir félagið og ber að þakka fráfarandi bæjarstjórn fyrir hennar vinnu í gerð uppbyggingasamningsins sem nær til þeirrar framkvæmdar.

Samhangandi við þessa framkvæmd er svo næsta framkvæmd í skýrslu um uppbyggingu íþróttamannvirkja á Akureyri á listanum, það er félags- og búningsaðstaða sem fylgir auknum umsvifum á svæðinu. Hafa forsvarsaðilar KA og Akureyrarbæjar áður rætt um nauðsyn þess að ganga til samninga um þá framkvæmd sem fyrst. Ljóst er að dýrmætt land þar sem nú er Akureyrarvöllur getur komist í umsjá bæjarins um leið og KA getur hafið leik á nýjum keppnisvelli.

Ljóst er að mikill hugur er í komandi sveitastjórnarfólki sem allt tók undir það að klára þyrfti uppbygginguna á KA-svæðinu (þ.e. keppnisaðstöðu fyrir knattspyrnu og aðstaða fyrir búningsklefa og aðrar deildir félagsins) sem allra fyrst. Fundargestir voru sammála um það að aðstaða KA-manna væri löngu sprunginn og að núverandi klefar og skrifstofuaðstaða (fundarsalir o.þ.h.) rúmuðu ekki núverandi starfsemi, sérstaklega í ljós mikillar uppbyggingar sunnantil í bænum á undanförnum árum.

Það var aðalstjórn KA, starfsfólk og fulltrúar deilda félagsins sem sat fundinn með framboðunum og fóru fram góðar umræður í kringum framsögu Eiríks formanns, sem voru bæði fræðandi fyrir komandi sveitastjórnarfólk og einnig sjálfboðaliðana í KA sem munu ganga að kjörkössunum næstkomandi laugardag.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is