Flýtilyklar
Strandblaksæfingar krakka hefjast 17. júní
13.06.2019
Blak
Blakdeild KA verður með strandblaksæfingar í Kjarnaskógi í sumar fyrir krakkana og mun Paula del Olmo sjá um þjálfunina. Æfingarnar munu hefjast 17. júní og ljúka 30. ágúst, vikufrí verður í lok júlí. Æfingjagjöldin eru 20.000 krónur á hvern iðkanda. Æfingarnar eru hugsaðar fyrir krakka 9-16 ára.
Æft verður tvisvar í viku og munu æfingarnar fara fram eftir veðráttu. Hver æfing verður klukkutími að lengd og þá verða haldin mót yfir sumarið. Skráning fer fram í gegnum Paulu í netfanginu pauladelolmo@yahoo.es.
Ef einhverjar spurningar eru varðandi æfingarnar þá er um að gera að hafa samband við Paulu í netfanginu hér fyrir ofan.