Flýtilyklar
Risaheimaleikir á laugardaginn!
Blakið fer heldur betur aftur af stað með krafti en bæði karla- og kvennalið KA leika heimaleik á laugardaginn í toppbaráttu efstu deildanna. Strákarnir ríða á vaðið klukkan 12:00 þegar topplið Hamars mætir norður en Hamarsmenn eru ósigraðir í deildinni til þessa.
KA er hinsvegar í 3. sæti deildarinnar og alveg klárt að strákarnir okkar eru staðráðnir í að verða fyrsta liðið til að leggja Hamar að velli.
Í kjölfarið tekur kvennalið KA á móti Álftanesi klukkan 14:00 en þar mætast efstu tvö liðin í úrvalsdeild kvenna. KA er á toppnum en Álftanes á leik til góða og er aðeins tveimur stigum á eftir okkar liði.
Það eru því gríðarlega mikilvæg stig í húfi í báðum leikjum laugardagsins og hvetjum við ykkur öll til að mæta á báða leiki og styðja okkar mögnuðu lið til sigurs, áfram KA!