Myndaveisla frá Íslandsmeistaratitli KA í blaki kvenna

Blak
Myndaveisla frá Íslandsmeistaratitli KA í blaki kvenna
Sögulegur áfangi! (mynd: Þórir Tryggva)

KA tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í blaki kvenna í fyrsta skiptið í sögunni er liðið vann sannfærandi 3-0 sigur á HK í hreinum úrslitaleik liðanna um titilinn í KA-Heimilinu í gær. Stelpurnar unnu einnig sigur í Bikarkeppninni og Deildarkeppninni og eru því þrefaldir meistarar 2018-2019.

Mætingin sem og stemningin á leiknum var algjörlega til fyrirmyndar og átti klárlega þátt í því að tryggja þennan sögulega sigur stelpnanna. Þórir Tryggvason ljósmyndari var á leiknum og myndaði hasarinn og gleðina í gríð og erg. Hægt að er skoða myndir hans með því að smella á myndina hér fyrir neðan.


Smelltu á myndina til að skoða myndaveislu Þóris Tryggvasonar frá leik gærdagsins

Takk fyrir frábæran stuðning kæru KA-menn og við hlökkum til að sjá ykkur aftur í kvöld er karlalið KA reynir að leika sama leik og stelpurnar með sigri á HK kl. 19:30 í KA-Heimilinu.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is