Mireia Orozco til liðs við KA

Blak

Kvennaliði KA í blaki hefur borist mikill liðsstyrkur en Mireia Orozco skrifaði í gær undir samning við blakdeild KA. Mireia sem er 27 ára gömul og kemur frá Spáni er gríðarlega öflugur kantsmassari og mun koma til með að styrkja okkar öfluga lið enn frekar.

Mireia gengur til liðs við KA frá Club Voleibol Sant Cugat sem leikur í spænsku ofurdeildinni. Mireia hefur verið mjög áberandi á Spáni undanfarin ár og þar sem hún hefur verið ein af bestu kantsmössurunum. Hún lék með CVB Barcelona frá 2014 til 2018 og í kjölfarið lék hún með Sant Cugat. Árin 2018 og 2019 var hún valin í stjörnuleikinn í ofurdeildinni auk þess sem hún lék í Meistaradeild Evrópu með Barcelona árin 2017 og 2018.

Á myndinni hér að ofan má sjá Mireiu ásamt þeim Miguel Mateo Castrillo þjálfara kvennaliðs KA og Arnar Má Sigurðsson formann blakdeildar KA.

Við bjóðum Mireiu hjartanlega velkomna norður og verður svo sannarlega spennandi að sjá hana með liðinu strax á sunnudaginn er Álftanes mætir norður og verður leikurinn í beinni á KA-TV. Leikurinn hefst kl. 15:00.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is