KA óskar eftir starfskrafti

Almennt

Knattspyrnufélag Akureyrar leitar nú að öflugum aðila í allskyns verkefni í daglegu starfi KA. Við leggjum upp úr jákvæðni og þjónustulipurð sem fellur vel við samskipti við börn og unglinga. KA skipar mikilvægt hlutverk í akureyrsku samfélagi og leggjum við metnað okkar í að sinna því vel og vandlega.

Helstu verkefni

  • Eftirlit með iðkendum og gestum á íþróttasvæði KA
  • Almenn ræsting og önnur verkefni er viðkemur þrifum á svæði KA
  • Afgreiðslustörf
  • Klefavarsla í skólaíþróttum
  • Önnur tilfallandi störf

Hæfniskröfur

  • Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
  • Samskiptahæfni við börn og fullorðna
  • Hæfileiki og vilji til að vinna með öðrum starfsmönnum og sjálfboðaliðum KA
  • Áhugi á íþróttum og heilsurækt er æskilegur
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

Umsóknir berast til framkvæmdastjóra KA, Sævars Péturssonar, á netfanginu saevar@ka.is

Frekari upplýsingar veitir Sævar í saevar@ka.is


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is