Höldur styrkir Blakdeild KA

Blak
Höldur styrkir Blakdeild KA
Arna og Arnar við undirritunina í gær

Höldur og Blakdeild KA skrifuðu undir nýjan styrktarsamning í gær en Arna Hrönn Skúladóttir markaðsstjóri Hölds og Arnar Már Sigurðsson formaður Blakdeildar KA undirrituðu samninginn.

Það er ljóst að þessi samningur er ákaflega mikilvægur fyrir blakstarfið í félaginu en KA hefur á undanförnum árum hampað ógrynni af titlum bæði í karla- og kvennaflokki. Þá hefur orðið mikil aukning á iðkendafjölda í yngriflokkum félagsins og heldur betur bjart framundan hjá Blakdeild KA.

Við kunnum Höldi kærar þakkir fyrir styrkinn góða en Höldur er einn af lykilsamstarfsaðilum félagsins í heild og gegnir stóru hlutverki í því metnaðarfulla starfi sem unnið er innan KA.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is