Flýtilyklar
Frábćr árangur KA á Hérađsmóti Völsungs
Völsungur hélt Hérađsmót í blaki í gćr ţar sem krakkar 15 ára og yngri léku listir sínar. Ţađ var kćrkomiđ fyrir iđkendur okkar ađ fá ađ komast á mót enda langt síđan síđasta yngriflokkamót fór fram.
Alls sendi KA 12 liđ til leiks og ţar á međal strákaliđ en ţađ er virkilega gaman ađ sjá fjölgunina í krakkablakinu hjá félaginu. Krakkarnir okkar fengu ađ nefna liđin sín sjálf á mótinu og niđurstađan varđ ansi hreint skemmtileg!
Í flokki 10 ára og yngri léku KA Hvalir og KA Kanínur en ekki voru skráđ úrslit í flokknum. Í ţessum aldursflokki er spilađ krakkablak en ţar má kasta og grípa boltanum sem hjálpar viđ ađ ná grunninum í blaki. Gaman ađ segja frá ţví ađ KA-mađurinn Sigurđur Arnar Ólafsson er einn af ađalmönnunum bakviđ uppvöxt krakkablaks á Íslandi.
Ţađ var heldur betur fjör hjá krökkunum okkar á Húsavík í gćr!
Í flokki 12 ára og yngri sendi KA alls fimm liđ til leiks. Í A-riđli KA Oreo, KA Masters og KA Stelpur ţar sem KA Masters stóđu uppi sem sigurvegarar en liđiđ vann alla leiki sína á mótinu. Í B-riđli kepptu svo Super KA og KA Champions og stóđu bćđi liđ sig međ prýđi en BF vann riđilinn.
KA átti tvö liđ í flokki 14 ára og yngri en ţađ voru KA 6 og KA 7. Eftir virkilega flotta leiki var KA 7 sem gerđi sér lítiđ fyrir og vann mótiđ. Í flokki 15 ára og yngri léku KA Boys og sýndi liđiđ flotta takta og átti fína spretti.
Jóna Margrét Arnarsdóttir ţjálfar 10 ára og yngri hópinn en Paula del Olmo stýrđi eldri krökkunum og á hún mikinn ţátt í ţeirri uppbyggingu sem á sér stađ í yngriflokkastarfi blakdeildar og ljóst ađ framtíđin er svo sannarlega björt í blakinu međ ţessu áframhaldi.