Valdís og Ævarr blakfólk ársins 2022!

Blak

Valdís Kapitola Þorvarðardóttir og Ævarr Freyr Birgisson eru blakfólk ársins 2022 en valið var kunngjört af Blaksambandi Íslands í dag. Bæði eru þau afar vel að heiðrinum komin enda algjörlega frábæru ári hjá þeim að ljúka.

Valdís Kapitola fór hamförum er KA hampaði öllum titlum ársins og var hún valin besti frelsingi úrvalsdeildarinnar sem og besti leikmaður Kjörísbikarsins eftir æsilegan sigur KA á Aftureldingu í úrslitaleik keppninnar. Þá er Valdís algjör lykilmaður í íslenska landsliðinu sem tók meðal annars þátt í undankeppni EM í sumar.

Ævarr Freyr sem er uppalinn hjá KA leikur lykilhlutverk í liði Marienlyst í Danmörku sem berst í toppbaráttu efstudeildar. Ævarr sem er 26 ára gamall leikur nú sitt fimmta tímabil með liði Marienlyst en þar áður vann hann allt sem hægt var að vinna með liði KA. Þá er hann rétt eins og Valdís lykilmaður í íslenska landsliðinu sem rétt eins og kvennalandsliðið tók þátt í undankeppni EM í sumar.

Óskum okkar mögnuðu fulltrúum innilega til hamingju með þennan mikla heiður.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is