Flýtilyklar
Stelpurnar ætla sér í úrslitahelgina
KA tekur á móti Þrótti Neskaupstað í 8-liða úrslitum Kjörísbikars kvenna í blaki klukkan 20:15 á morgun, miðvikudaginn 3. mars. Stelpurnar eru ríkjandi Bikarmeistarar og þurfa á þínum stuðning að halda til að tryggja sér sæti í úrslitahelginni.
Úrslitahelgin í Kjörísbikarnum þar sem undanúrslit og úrslitaleikir karla og kvenna fara fram er án nokkurs vafa stóri viðburðurinn í blakheiminum hér á landi og ekki nokkur spurning að þar viljum við vera. Það verða 142 miðar í boði á leikinn og við ætlum okkur að sjálfsögðu að nýta hvern einasta miða. Við hlökkum til að sjá ykkur og áfram KA!
Leikurinn verður svo að sjálfsögðu í beinni útsendingu á KA-TV fyrir þá sem ekki komast á leikinn og er hægt að nálgast útsendinguna hér fyrir neðan.