Flýtilyklar
Landsbankinn framlengir við blakdeild KA
Landsbankinn og blakdeild KA framlengdu á dögunum styrktarsamning sinn til næstu tveggja ára. Landsbankinn hefur verið öflugur bakhjarl blakdeildar sem og annarra deilda félagsins og erum við afar þakklát fyrir áframhaldandi samstarf sem skiptir sköpum í okkar metnaðarfulla starfi.
Undirritun samningsins fór fram í höfuðstöðvum Landsbankans á Akureyri en Arnar Már Sigurðsson formaður blakdeildar KA og Arnar Páll Guðmundsson fyrir hönd Landsbankans skrifuðu undir.
Það er gríðarlegur kraftur í blakstarfinu en mikil aukning hefur orðið í yngriflokkum KA auk þess sem meistaraflokkar félagsins standa í ströngu í úrvalsdeildum karla og kvenna en kvennalið KA er ósigrað á toppi deildarinnar með fullt hús stiga.