Flýtilyklar
Deildarmeistaratitillinn í húfi á föstudag!
KA og Afturelding hafa borið höfuð og herðar yfir önnur lið í blaki kvenna í vetur en þau eru jöfn á toppi deildarinnar fyrir lokasprettinn. Liðin hafa mæst tvívegis í vetur og unnið sitthvorn leikinn en það eru einmitt einu töp liðanna í vetur.
Liðin mætast í þriðja og síðasta skiptið í deildinni í vetur í KA-Heimilinu kl. 20:30 á föstudaginn og í raun hægt að tala um hreinan úrslitaleik um Deildarmeistaratitilinn. Stelpurnar okkar eru staðráðnar í að sækja dýrmætan sigur og þurfa svo sannarlega á því að halda að við fjölmennum í stúkuna.
KA hefur þrívegis orðið Deildarmeistari í blaki kvenna, fyrst árið 2005, aftur árið 2019 þar sem liðið varð einnig Bikar- og Íslandsmeistari og svo vörðu stelpurnar Deildarmeistaratitilinn árið 2020.