Telma framlengir og nýr samningur við Sparisjóðinn

Handbolti
Telma framlengir og nýr samningur við Sparisjóðinn
Telma Lísa í höfuðstöðvum Sparisjóðsins

Telma Lísa Elmarsdóttir hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við KA/Þór og er nú samningsbundin félaginu út tímabilið 2025-2026. Þetta eru afar jákvæðar fréttir enda Telma sterk skytta sem og öflugur varnarmaður sem er uppalin hjá KA/Þór.

Á sama tíma gerði Sparisjóður Höfðhverfinga nýjan samstarfssamning við KA/Þór og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir stuðninginn. Það eru spennandi tímar framundan í kvennaboltanum hjá okkur þar sem við munum byggja upp öflugt lið á okkar ungu uppöldu stelpum.

Það var því eina vitið að slá þessum tveimur frábæru samningum upp saman og mynduðum við því Telmu í höfuðstöðvum Sparisjóðsins hér fyrir norðan. Telma sem er nýorðin 22 ára síðar lék fyrsta meistaraflokksleikinn veturinn 2018-2019 og hefur undanfarin ár unnið sig upp í stærra og stærra hlutverk í liðinu.

Telma hefur nú leikið 85 leiki í deild, bikar og Evrópu fyrir KA/Þór og ljóst að það er stutt í tímamótaleik hjá henni. Hún hefur verið óheppin með meiðsli en ávallt sýnt gríðarlegan karakter og komið sterk til baka. Það er frábært að Telma sé búin að skrifa undir nýjan samning og verður gaman að fylgjast áfram með hennar framgöngu í liði KA/Þórs.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is