Flýtilyklar
Aðalfundur KA og deilda félagsins
Aðalfundur Knattspyrnufélags Akureyrar verður haldinn fimmtudaginn 7. apríl næstkomandi í KA-Heimilinu klukkan 20:00. Við hvetjum alla félagsmenn KA óháð deildum að sækja fundinn og taka þátt í starfi félagsins enda snertir aðalfundurinn allt starf innan KA.
Jafnframt munu handknattleiksdeild, blakdeild, júdódeild og spaðadeild félagsins halda sinn aðalfund á næstu dögum og er dagskrá fundanna eftirfarandi.
5. apríl 17:30 - Aðalfundur Blakdeildar
5. apríl 18:30 - Aðalfundur Handknattleiksdeildar
7. apríl 18:30 - Aðalfundur Spaðadeildar
7. apríl 19:00 - Aðalfundur Júdódeildar
7. apríl 20:00 - Aðalfundur KA
Athugið að tillögur til lagabreytinga og framboð til stjórnar þurfa að berast að minnsta kosti 8 dögum fyrir aðalfund eða 30 mars. Senda skal tillögur eða framboð á framkvæmdastjóra félagsins á saevar@ka.is.
Hvetjum sem flesta félagsmenn til að mæta og taka þátt í störfum félagsins.